Um  Martak ehf

Rækjuvélaþjónustan Martak  sérhæfir sig í þjónustu við fyrirtæki í rækjuvinnslu með framleiðslu ýmisskonar véla og tækja fyrir rækjuiðnaðinn, bæði staðlaðar og sérsmíðaðar, allt eftir þörfum hvers og eins.

Fyrirtækið var stofnað árið 1995 af Ómari Ásgeirssyni sem hefur frá árinu 1986 unnið við að þjónusta og smíða rækjupillunarvélar og aðrar vélar og tæki fyrir rækjuiðnaðinn.

Í dag getur Martak boðið allflestar vélar sem þarf við hefðbundna rækjuvinnslu fyrir utan frystiskápa.

Martak býður einnig upp á yfirlitsteikningar fyrir nútíma rækjuverksmiðjur þar sem haghvæmni, afköst og nýting fyrir rækjuframleiðandann er höfð að leiðarljósi. Martak hefur hannað, teiknað og sett upp nokkrar af stærstu rækjuverksmiðjunum á Íslandi og er það vaxandi þáttur í rekstri fyrirtækisins.

Ein aðalstarfsemi Martaks er framleiðsla á rækjuvölsum og varahlutum fyrir allra rækjupillunarvélar sem notaðar eru við rækjuvinnslu (amerískar, íslenskar og norskar). Við kappkostum að eiga ávallt á lager alla varahlutir fyrir rækjupillunarvélarnar, þar með talið rækjuvalsa.  Martak hefur kosið að nota einungis úrvals hráefni í gúmmívalsa sína sem skilar hámarks afköstum, nýtinu og endingu.

Langflestir viðskiptavinir okkar kjósa að hafa þjónustusamning við pillunarvélar sínar, en þeir byggja á því að rækjuvölsum og öðrum slitflötum pillunarvélanna er skipt út með reglubundnum hætti.  Þannig er ávallt tryggt að vélarnar skili hámarks nýtingu og afköstum.  Með þessum hætti þjónustar Martak flestar íslenskar rækjuverksmiðjur ásamt því að hafa mjög verulega markaðshlutdeild á Nýfundnalandi og víðar í Kanada.


Ýmsar upplýsingar:

Heimilisfang:
Martak ehf
Hafnargötu 21
240 Grindavík
Ísland

Símar: 426-7950 
Fax: 426-7940

Ómar Ásgeirsson,
, forstjóri

GSM: 893-2602
Netfang: omar@martak.is

Vilhelm Þór Þórarinsson, tæknimaður

GSM: 895-1166
Netfang: villi@martak.is


Svanþór Eyþórsson,, framleiðslu- og innkaupastjóri

GSM: 663-3600
Netfang: svanthor@martak.is

Petra Rós Ólafsdóttir, launafulltrúi

Netfang: petra@martak.is

- Vigdís Viggósdóttir, bókhald

Netfang: vigdis@martak.is

 

Renniverkstæði
Gunnar Jóhannesson renniverk@martak.is

Alfreð Elías Jóhannsson
Daníel Jónsson
Guðlaugur Viðar Viðarsson
Gunnlaugur Sigurjónsson
Jakob Einarsson
Sigurður Gunnarsson
Steingrímur Pétursson
Unnar Magnússon
Úlfar Þór B. Aspar

Home Designed by DesignEuropA.com